![]() |
Engiferfiskur að hætti Bjarkar
1 kg. Skötuselur (spari) eða Keila (hversdags) 3 gulrætur 2 stilkar sellerí 2 laukar 2 cm engifer 2-3 hvítlauksrif 4 dl. Fiskisoð Karrý, salt og pipar 250 gr. rjómaostur
Grænmetið er skorið í strimla og svissað á pönnu í smjöri. Það sett í pott ásamt, engiferi, hvítlauk, fiskisoði (vatn og teningur) og karrý. Soðið upp með rjómaosti. Þá er fiskurinn velt upp úr hveiti, saltaður, pipraður og snöggsteiktur í olíu. Settur í eldfast mót og sósunni hellt yfir. Sett í 180°C heitan ofn í 5-10 mín eða sósunni hellt yfir fiskinn á pönnunni og lokið sett á í um 5 mín. Borið fram með hrísgrjónum og salati. Fallegt og gott er að strá ferskri steinselju yfir fiskinn áður en hann er borinn fram. Einnig er skemmtilegt að sjóða villihrísgrjón þegar von er á gestum og blanda þeim saman við hrísgrjónin. |
Samfylkingin |