Steinunn Valdís Steinunn Valdís Við kjötkatlana Mín Reykjavík Myndir Eldri pistlar Í dag


Góðgæti

Steinunn Valdís

Ég er fædd 7. apríl 1965 og bý að Rauðalæk 23. Ég er fædd í Reykjavík, dóttir Óskars Valdemarssonar húsasmíðameistara, d. 1998, og Aðalheiðar þorsteinsdóttur húsmóður, d. 1978. Maðurinn minn er Ólafur Haraldsson hönnuður og við eigum eina dóttur.

Námsferill
  • Stúdentspróf frá MS 1986
  • B.A. í sagnfræði frá HÍ 1992
Starfsferill
  • Fulltrúi á launaskrifstofu fjármálaráðuneytisins 1986-1987
  • Starfskona Rannsóknarstofu í kvennafræðum árið 1992
  • Framkvæmdastjóri Hallveigarstaða 1994-1997
  • Starfaði á skrifstofu Kvenfélagasambands Íslands 1992-1994
Almenn félagsstörf
  • Formaður félags sagnfræðinema við HÍ 1989-1990
  • Í Stúdentaráði HÍ 1990-1992 fyrir Röskvu
  • Í áfrýjunar- og sáttanefnd HÍ 1990-1991
  • Formaður Stúdentaráðs HÍ 1991-1992
  • Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1992-1994
Pólitískur ferill
  • Einn af stofnendum Grósku, samtökum jafnaðarmanna og félagshyggjufólks
  • Borgarfulltrúi frá 1994
  • Í byggingarnefnd 1994-1998
  • Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 1994-1999, Þar af formaður frá 1997-1999
  • Formaður íÞrótta og tómstundaráðs 1994-2002
    Varamaður í hafnarstjórn 1994-2002
  • Formaður Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar 1996-1998
  • Í miðborgarstjórn 1998-2002
  • Í borgarráði 1998-2002
  • Formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni 1998-2002
  • Í skipulags og umferðarnefnd 1998-2002
  • Fyrsti ritari Samfylkingarinnar og sat í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar 2000-2001
  • Hef setið í stjórn Lánatryggingasjóðs kvenna frá stofnun árið 1997 og gegni þar formennsku nú.
  • Fulltrúi Reykjavíkurbrorgar í ýmsum nefndum og starfshópum á vegum hins opinbera t.d. í stjórn Fjölsmiðjunnar
  • Borgarstjóri Reykjavíkur 1. desember 2004-11.júní 2006


 

Póstur