Steinunn Valdís Steinunn Valdís Við kjötkatlana Mín Reykjavík Myndir Eldri pistlar Í dag


Góðgæti
Þriðjudagur 17. apríl 2007
Klaufalegur undirbúningur og sérkennilegt útspil Framsóknar í flugvallarmálum
Í dag var Borgarstjórnarfundur þar sem fram fór afar sérkennileg umræða um flugvallarmálið svokallaða.  Í minni borgarstjóratíð  hafði ég frumkvæði að því að koma á laggirnar vinnuhópi sem skoðaði framtíðarlegu flugvallarins.  Með því vildi ég freista þess að ná málinu upp úr þeim skotgröfum sem það hafði verið lengi.

Í síðustu viku gerðist það að varaborgarfulltrúi Framsóknar, Óskar Bergsson upplýsti alþjóð um það að hann væri ósáttur við niðurstöðu skýrslunnar.  Skýrslu sem ég og aðrir fulltrúar minnihlutans höfðum ekki fengið í hendur. Í gær var svo haldinn fundur í Borgarráði þar sem helstu niðurstöður skýrslunnar voru kynntar.  Þar óskuðu VG eftir því að ræða málið utan dagskrár í dag en svo klaufalega var að málinu staðið að því var neitað.  Það var ekki fyrr en ég vakti athygli meirihlutans á því að á sama tíma og við vorum að funda var samgönguráðherra Sturla Böðvarsson, á fyrsta aðalfundi Flugstoða að kynna skýrsluna, að málið var sett á dagskrá.  Umræðan var takmörkuð við fimm mínútur á borgarfulltrúa og gefur auga leið að ekki er hægt að ræða efnislega um svo stórt mál á efnislegan hátt.  

Það að málið skuli vera rætt með þessum hætti í dag má skrifa á afar klaufalegan undirbúning meirihlutans og sérkennilegt útspil varaborgarfulltrúa Óskars Bergssonar.

Og svo kemur ráðherrann í fjölmiðla með alls ótímabærar yfirlýsingar um að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýri, áður en skýrslan er gerð opinber.  Því miður er þetta ekki í fyrsta skipti sem samgönguráðherra hleypur út undan sér með ótímabærar yfirlýsingar.

Ég sé ekki betur en málið sé hið klaufalegasta og endurspegli mikinn ágreining innan meirihlutans um málið.

Póstur