Steinunn Valdís Steinunn Valdís Við kjötkatlana Mín Reykjavík Myndir Eldri pistlar Í dag


Góðgæti
Fimmtudagur 26. apríl 2007
Rósir á rósir ofan

Það er margt skemmtilegt við starf stjórnmálamannsins. Eitt af því er að standa í kosningabaráttu, maður hittir mikið af fólki af öllum stærðum og gerðum. Síðustu daga hef ég gengið í hús í borginni og fært þeim sem ég hitti rauða rós með góðri kveðju frá okkur í Samfylkingunni. Og mikið óskaplega er þetta skemmtilegt, maður lendir á kjaftatörn um ólíklegustu hluti. Í kvöld voru það öldrunarmálin og biðlistarnir. Ég talaði við konu sem var með tárin í augunum yfir aðbúnaði gamla fólksins, starfandi sjálf á öldrunarstofnun. Sagði mér reynslusögur sem eru sláandi. Við vorum sammála um að við Íslendingar, sem öll erum jafnaðarmenn í hjarta okkar, vildum ekki hafa þetta svona. Við eigum nefnilega flest foreldra, afa og ömmur sem eiga ekki svona aðbúnað skilið. Það er eitthvað í okkar samfélagi sem er ekki eins og það á ekki að vera. Líklega bara ríkisstjórnin !

Það er ekki trúverðugt þegar ríkisstjórnin kemur núna korteri í 12 maí og tekur skóflustungur að hjúkrunarheimilum, sem löngu hefðu átt að rísa.

Það er ekki trúverðugt þegar ríkisstjórnin kemur nú og talar um að eyða biðlistum eftir hjartaaðgerðum.

Það er ekki trúverðugt þegar ríkisstjórnin kemur og talar um að eyða biðlistum eftir greiningu á BUGL.

Niðurstaða mín og konunnar í vesturbænum var þessi: Þeir sem kjósa BIÐLISTA eftir þjónustu kjósa ríkisstjórnarflokkana. Við hin sem viljum endurreisn velferðarkerfisins kjósum XS


Laugardagur 21. apríl 2007
Þessi grein birtist í Fréttablaðinu í morgun. Biðlistapólitík Sjálfstæðisflokksins

Þriðjudagur 17. apríl 2007
Klaufalegur undirbúningur og sérkennilegt útspil Framsóknar í flugvallarmálum

Sunnudagur 15. apríl 2007
Að loknum landsfundi

Föstudagur 30. mars 2007
Aftur í pólitíska gírinn

Póstur